Fagnaðu fullveldinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Vissir þú að Íslendingar voru einu sinni með kóng yfir sér? Auðvitað vissir þú það. Íslendingar fengu fullveldi frá Dönum 1. desember árið 1918 og urðu Íslendingar þá að mestu leyti sjálfstæð þjóð. Það er tilvalið að halda upp á þennan merka dag í Íslandssögunni. Þú getur boðið upp á meðlæti með kaffinu í vinnunni eða boðið ættingjum í kvöldkaffi í tilefni dagsins. Skoðaðu tillögur okkar hjá Tertugalleríinu sem tengjast 1. desember.

Stór skref var stigið í átt að fullu sjálfstæði Íslands 1. desember árið 1918. Þann dag tóku gildi lög sem staðfestu að Ísland væri fullvalda og frjálst ríki. Segja má með sanni að undirbúningurinn hafi tekið um hundrað ár því snemma á 19. öld hófst sjálfstæðisbarátta Íslendinga. Henni lauk ekki 1918 heldur stóð allt þar til landið fékk sjálfstæði árið 1944.

Lengi vel var gefið frí í skólum í tilefni fullveldisdagsins og haldið upp á hann með ýmsum hætti. Það má því ætla að 1. desember árið 1918 hafi verið mikill hátíðisdagur. Það var nú ekki raunin.


Frostaveturinn mikli
Árið 1918 hafði verið erfitt Íslendingum og bar það skugga á gleðitíðindin 1. desember. Árin 1917 til 1918 var kallaður Frostaveturinn mikli og mældist 30 gráðu frost víða á landinu í janúar 1918. Svo mikill hafís myndaðist að hann lokaði siglingaleiðum suður fyrir land fram í febrúar.

Af þeim sökum fór lítið fyrir hátíðarhöldum í tilefni dagsins. Dagurinn varð ekki að hátíðisdegi strax. Fyrstu árin var íslenski fáninn dreginn að húni, kennsluhlé gert í skólum og heiðursorður veittar. Háskólastúdenta hófu að halda upp á daginn á þriðja áratug síðustu aldar og gerðu það til ársins 1960. Árið 1944 þegar Ísland var fullkomlega sjálfstætt ríki með eigin forseta varð 1. desember einn af opinberum fánadögum lýðveldisins með forsetatilskipun.

Þjóðlegar kleinur
Sumir halda fullveldisdaginn í heiðri enda er þetta einn af merkustu dögunum í sögu þjóðarinnar. Við hjá Tertugalleríinu erum í þeim hópi. Við höfum tekið saman nokkrar tillögur að bakkelsi sem þú getur boðið upp á í tilefni dagsins. Þar á meðal eru klassísku en þjóðlegu litlu kleinurnar og pönnukökurnar sem allir elska. En ekki hræðast það að láta frumleikann og sköpunargáfuna fara á flug. Þú getur alveg farið út fyrir þjóðlega kassann og fengið þér gómsæta banana og kókosbombu. Skoðaðu úrvalið og pantaðu tímanlega.


Pantaðu tímanlega
Mundu að panta tertu og annað bakkelsi tímanlega því afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar. Ef þú ætlar að panta fyrir helgina þá þarftu að gera það fyrir klukkan 16:00 á fimmtudegi.

Hafðu í huga að nú geturðu líka greitt fyrir vörur sem þú kaupir á vef Tertugallerísins með debetkorti.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →