Hjá Tertugalleríinu færðu fallegar veisluveigar fyrir hlaðborðið þitt um jólin

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Þegar nær dregur jólum gera margir sér dagamun og útbúa dýrindis hlaðborð til að skapa notalega stund með samstarfsfélögum eða vinum og vandamönnum. Þess heldur er tilvalið að bjóða upp á hlaðborð fyrir hvers kyns veislur og boð.

Það er alltaf gott að skipuleggja sig til að geta fengið að njóta í ró og næði í aðdraganda jólanna. Leyfðu okkur í Tertugalleríinu að létta undir með þér. Við hjá Tertugalleríinu gerum þér einfalt að panta veisluveigar hratt og vel, þannig getur þú notið tímans betur með þínu fólki í stað þess að festast í eldhúsinu.

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á úrval af frábærra veisluveiga á hagstæðu verði. Skoðaðu fjölbreyttar, ljúffengar og fallegar veisluveigar fyrir hlaðborðið þitt á einum stað.

Kíktu við á vefsíðu okkar þar sem möguleikarnir eru margir og ljúffengir og slá alltaf í gegn!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þú bjóðir upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

 

Pantaðu tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantir tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

 

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →