Mundu að panta tímanlega fyrir Bleika daginn!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Sláðu í gegn og bjóddu samstarfsfélögum eða viðskiptavinum upp á gómsætar bleikar veigar í tilefni Bleika dagsins föstudaginn 20. október.

Þú getur pantað frábæra og gómsæta bleika tertu og aðrar bleikar veigar hjá Tertugalleríinu með bleika kaffinu í tilefni af Bleika deginum. Bleika slaufan fær 15 prósent af andvirði pantir þú bleikar tertur og kökur sem sækja skal til 31. október næstkomandi.

Til að fá afhent þínar bleiku veisluveigar fyrir föstudaginn 20. október þarf að leggja inn pöntun fyrir miðvikudaginn 18. október.

Smelltu hérna og skoðaðu úrvalið okkar af bleikum veisluveigum!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum ítreka að best er að sækja pöntun sama dag og veislan eða tilefnið er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þú skoðir úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi. Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef einhverja hluta vegna pöntun er ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →