Pantaðu afmælisveitingarnar frá Tertugalleríinu

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Fátt er skemmtilegra en gott afmæli. Það skiptir ekki máli hvort að afmælisbarnið sé 8 ára eða 80 ára, við hjá Tertugalleríinu erum með ljúffengt úrval af veitingum tilvöldum fyrir afmælisveisluna.

Afmælisterta með nammi, texta og mynd er vinsælasta terta Tertugallerísins. Þessi dásemd er með ljúffengum súkkulaðibotni, með gómsætu brúnu smjörkremi sem er síðan skreytt með lakkrís, M&M og ávaxtahlaupi. Hægt er að fá Afmælistertuna í 15, 30 og 60 manna stærðum. Einnig er hægt að fá Afmælistertu með nammi og texta, Afmælistertu með nammi og síðan Afmælistertu með nammi og mynd.

Nýverið hófum við sölu á litlum kleinuhringjum með Chupa Chups en um er að ræða gómsæta og litríka kleinuhringi með þremur Chupa Chups bragðtegundum. 24 stykki koma saman í kassa og eru litlu kleinuhringirnir með epla-, kóla- og jarðaberjabragði.

Bjóddu upp á brauðrétti með afmælistertunni. Skoðaðu úrvalið okkar af brauðtertum, rúllutertubrauðum, smurbrauðum og snittum. Skoðaðu einnig allt úrvalið okkar af vegan veitingum!

Auðveldaðu þér fyrirhöfnina á bakstrinum fyrir afmælið og pantaðu afmælisveitingarnar frá Tertugalleríinu. Skoðaðu hér allar þær veitingar sem eru tilvaldar í afmælið! 

Pantaðu tímanlega
Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar. Ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi. Á miklum álagstímum er betra að gefa okkur eins langan fyrirvara og þú getur, til að öruggt sé að við getum annað þinni pöntun.
Athugaðu að afgreiðslufrestur getur lengst verulega á þessu tímabili. Tertugalleríið áskilur sér rétt til að loka fyrir pantanir ef fyrir liggur eftirspurn verði ekki annað. Tryggðu þér tertu í tíma. Pantaðu tímalega.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →