Súkkulaðiterta fyrir bekkjarafmælið

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Bekkjarafmæli

Afmælisdagurinn er sérstakur dagur hjá mörgum börnum og spenningurinn oft ótrúlega mikill fyrir honum. Margir foreldrar og forráðamenn vilja hafa afmæli barnsins eins eftirminnilegt og hægt er og góður undirbúningur er lykilatriði til að takmarka umstangið í kringum afmælið.  

Núna þegar haustið er komið og skólarnir byrjaðir eru foreldrar og forráðamenn oft að huga að bekkjarafmælum. Við hjá Tertugalleríinu fáum mikið af fyrirspurnum um vinsælar afmælistertur hjá yngri kynslóðinni og bendum við þá sérstaklega á súkkulaðiterturnar okkar, því hjá okkur eru allir afmælisdagar súkkulaðidagar.

Við hjá Tertugalleríinu vitum að það er að mörgu að huga þegar kemur að skipulagningu afmælis barnsins þíns og hvort sem fagna á stórafmæli í stórum hópi eða halda litla veislu þá er terta frá Tertugalleríinu alltaf tilvalin á veisluborðið. Við erum alltaf tilbúin að liðsinna þér í afmælisundirbúningnum.

Hjá Tertugalleríinu er auðvelt að panta og enn auðveldara að bjóða upp á. Við setjum súkkulaðitertuna á fallegan gylltan pappa sem auðveldar þér að bera fram og er einstaklega fallegt á veisluborði.

Súkkulaðiterta fyrir afmælið þitt

Góð súkkulaðiterta með nammi er vinsæl hjá yngri kynslóðinni og fær ávallt bragðlaukana til að kætast. Súkkulaðiterturnar frá Tertugalleríinu eru sígildar, henta flestum tilefnum og eru af ýmsum stærðum og gerðum. Hægt er að fá þær fyrir 15 manns (20x30cm), 30 manns (40,4x29cm) og 60 manns (58x39cm). Þá er jafnvel hægt að sérpanta enn stærri tertur.

Til að gera súkkulaðitertuna þína persónulegri er hægt að prenta mynd að eigin vali til að hafa á tertunni og það er líka hægt að setja texta á súkkulaðitertuna. Súkkulaðiterturnar okkar hafa bragðgóðan súkkulaðitertubotn með súkkulaði, skreytt með M&M, hlaupböngsum og brúnu ljúffengu smjörkremi á kantinum.

Það verður engin svikinn af bragðgóðu súkkulaðitertunum okkar. Munið bara að panta tímanlega!

Ferskbakað til að njóta samdægurs

Við hjá Tertugalleríinu viljum því ítreka að það er best að sækja pöntun sama dag og veislan er, þannig að þið bjóðið upp á ferskar og bragðgóðar veitingar. Það er gott að hafa það í huga þegar tertur eru pantaðar!

Pantið tímanlega

Tertugalleríið hefur í mörg ár boðið upp á gott úrval af frábærum veisluveigum á hagstæðu verði fyrir útskriftarveislur. Veldu þínar veisluveigar og leyfðu okkar að liðsinna þér við undirbúninginn. Við mælum með því að þið skoðið úrvalið okkar og pantið tímanlega.

Afgreiðslufrestur á venjulegum dögum eru 2-3 dagar og ef þú ætlar að panta fyrir helgi þá þarftu að gera það fyrir klukkan 14:00 á fimmtudegi.

Athugið að á álagstímum getur afgreiðslutími lengst.

Afhending og ábyrgð

Það er okkur hjá Tertugalleríinu mikið kappsmál að afgreiðsla pantana sé alltaf rétt og að vörurnar okkar standist væntingar viðskiptavina. Liður í að tryggja það er að viðtakendum er alltaf sýnd varan við afgreiðslu og farið er fram á að móttakandi staðfesti að um rétta afgreiðslu sé að ræða hvort sem það er sami aðili og pantaði eður ei.

Á opnunar- og afgreiðslutíma er alltaf bakari á vakt sem brugðist getur við og lagfært eða breytt ef misskilningur hefur orðið eða afgreiðsla er ekki í samræmi við það sem pantað var. Eftir að vörur hafa verið sýndar og móttakandi veitt þeim viðtöku eru pantanir ekki lengur á ábyrgð Tertugallerís.

Ef pöntun er einhverja hluta vegna ekki sótt fyrir lokun er reikningur sendur á viðkomandi þar sem varan hefur verið framleidd samkvæmt ósk kaupanda.


Deila þessari færslu



← Eldri færsla Nýrri færsla →