Fréttir

Blóm og gómsæt gulrótarterta á bóndadaginn

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Nú styttist í bóndadaginn og vissara fyrir eiginkonur og kærustur að hefja þegar undirbúning. Á þessum fyrsta degi þorra hefur orðið til sá skemmtilegi siður að konur gefi bónda sínum blóm og geri vel við hann með mat og drykk. Þar sem stutt er frá jólum gæti gulrótaterta  passað vel með kaffinu á bóndadaginn.

Lestu meira →

Gleðilegt nýtt ár!

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Nú er árið 2015 senn á enda og landsmenn margir farnir að huga að nýju ári. Starfsfólks Tertugallerís Myllunnar þakkar landsmönnum fyrir viðskiptin og samskiptin á árinu sem er að líða og óskar þér farsældar á árinu 2016.

Lestu meira →

Gerðu starfsfólkið ánægt á aðventunni

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Fátt er skemmtilegra á vinnustöðum en þegar starfsfólkinu er óvænt boðið upp á tertu inni á kaffistofu. Komdu starfsfélögunum á óvart og pantaðu tertu hjá Tertugalleríinu. Jólastjarna Tertugallerísins er vinsæl á aðventunni og kemur öllum í hátíðarskap.

Lestu meira →

Kynntu þér opnunar- og afgreiðslutíma Tertugallerísins um jól og áramót

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Nú líður senn að jólum. Afgreiðslu- og pantanatími Tertugallerísins breytist yfir stórhátíðirnar. Lokað er á aðfangadag og fram yfir sunnudaginn 27. desember. Lokað er líka á gamlaársdag og nýársdag. Pantanir í vefverslun Tertugallerísins taka mið af þessum breytta tíma.

Lestu meira →

Haltu upp á vetrarsólstöður

Útgefið af Tertugallerí Myllunnar þann

Það er fátt yndislegra en vetrarsólhvörf. Þá er stutt til jóla, margir búnir eða langt komnir með jólaundirbúninginn og klukkurnar alveg að fara að klingja. Það er upplagt á vetrarsólhvörfum að bjóða upp á góðgæti með kaffinu í fyrirtækinu. Við hjá Tertugalleríinu mælum með ýmsu sem gott er að bjóða upp á. Þar á meðal er eplakakan með rommi, klassísku kleinurnar og þjóðlegar skonsur.

Lestu meira →